Færsluflokkur: Bloggar

Þegjandi kosningar

Meirihluti þjóðarinnar mætti ekki á kjörstað á laugardaginn.    Fjölmiðlar hafa leitað ástæðna þessa um helgina og fundið það helst að allt of margir hafi verið í framboði þannig að of flókið var að kjósa.   Ég held að það sé ekki skýringin.  Það eru að jafnaði miklu fleiri frambjóðendur í almennum kosningum til sveitastjórna og alþingis en voru í framboði núna.   Ekki var flókið að kjósa, ekki flóknara en að fylla út Lottó seðil.   Hvað fór þá úrskeiðis ?    Um framboð til stjórnlagaþings giltu sömu lög og til þingkosninga.  Stjórnvöld báru sömu ábyrgð og frambjóðendur höfðu sama hlutverk.  Síðan er það hlutverk fjölmiðla að greina frá eftir því sem við á.  

En gerðu allir sitt ?  Nei.   Einna helst má ætla að stjórnvöld hafi staðið við sitt.   Stór hluti frambjóðenda misskildi hlutverk sitt og töldu að þeirra hlutverk í aðdraganda kosningana væri að sitja heima og bíða eftir að frægðin læddi sér inn um bréfalúguna.   Fjölmiðlar töldu að hlutverk sitt í þessum kosningum væri að passa að birta sem minnst frá frambjóðendum og ljósvakamiðlar lokuðu svo kyrfilega á frambjóðendur að á tímabili mátti halda að stjórnlagaþing væri leyniþing sem fjalla ætti um karamellur.   Í ljósi þessa er varla nema eðlilegt að útkoman sé í samræmi.    Þetta er í fyrsta skipti sem við reynum þessa tegund af kosningum og því eðlilegt að enginn viti almennilega hvernig á að haga málum.  Núna erum við reynslunni ríkar.  Við vitum núna að auglýsa þarf framboðin, frambjóðendur þurfa að kynna sig og málefni sín fyrir almenningi og fjölmiðlar verða að taka þátt.  Við verðum að taka svona kosningar jafnalvarlega og allar aðrar kosningar.  Húrra fyrir þeim frambjóðendum sem tóku sig alvarlega, kynntu sig og auglýstu.. húrra fyrir þeim fjölmiðlum sem áttuðu sig að lokum og húrra fyrir rúmlega 83 þúsund kjósendun sem kusu ... þrátt fyrir allt. 


mbl.is Úrslit kynnt annað kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott ungt fólk

Unga kynslóðin er til fyrirmyndar.   Vel menntuð, víðsýn, heilbrigð og nýjungagjörn.   Evrópumeistrar í fimleikum,  væntanlegir keppendur í Evrópumóti knattspyrnu,  snjallar uppfinningar í hugverkum,  flottir og ferskir listamenn og svo má lengi telja.   Þetta er fólkið sem ætlar að byggja land okkar í framtíðinni.   Ég tel að við getum verið stollt af unga fólkinu okkar. 

Við þurfum að treysta unga fólkinu til verka og lofa því að ákvarða sjálft um eigin framtíð.  

Við eldri kynslóðirnar erum að skila í dag til yngri kynslóða afskaplega lélegu þjóðarbúi með misráðnum ákvörðunum og framtíðarfjötrum.  Af því þurfum við að læra að okkar skoðanir eru ekki endilega það sem hentar framtíðinni, við fengum okkar tækifæri.   Íslendingar hafa byggt upp velferðar, hátækni og nýtískuþjóðfélag á skemmri tíma en nokkur önnur þjóð í heiminum en með nokkrum timburmönnum sem næstu kynslóðir þurfa að glíma við.    Núna er rétti tíminn fyrir eldri stjórnmálamenn og besser vissara að setjast í helgan stein og fylgjast glaðir með kyndlinum sem verður borinn áfram af næstu kynslóð af ferskleika og glæsibrag.


Höfundur

Birgir Gunnlaugsson
Birgir Gunnlaugsson
54 ára giftur 5 barna faðir með vaxandi hóp af barnabörnum.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 324

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband